Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ

Forgangsröðun gæluverkefna

Victor Ingi Olsen, 18. febrúar 2011

Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar, í byrjun febrúar, varsamþykkt að styrkja Garðasókn sem nemur fimmtán milljónum króna úr bæjarsjóði svo kirkjan geti keypt þrjátíu milljóna orgel. Það sem vakti athygli mína sérstaklega er að ekki einn einasti bæjarfulltrúi greiddi atkvæði á móti tillögunni. Þó heyra málefni kirkjunnar ekki undir bæinn heldur ríkið. Það skal þó ekki tekið af fulltrúa M-listans að viðkomandi sat hjá við afgreiðslu málsins, reyndar eftir að hafa í atkvæðagreiðslu stuttu áður lýst því yfir af einstakri snilld að það „að sitja hjá þýddi hið sama og að segja já“.Helstu rökin fyrir því að greiða Garðasókn þessar milljónir virðast vera þau að Garðabær hafi einhvern tímann áður styrkt kirkjuna þegar „einn besti flygill landsins“ var keyptur...


Lesa áfram
Fréttir

Aðalfundur

8. febrúar 2012

Aðalfundur Hugins (f.u.s í Garðabæ) verður haldinn miðvikudaginn 15. Febrúar 2012 á heimili félagsins að Garðatorgi 7, Garðabæ, og hefst klukkan 20.00.Dagskrá:1. Venjuleg aðalfundarstörf2. Lagabreytingar3. Önnur málStjórn Hugins í Garðabæ

Lesa áfram

Skráning á SUS-Þing í Hveragerði

4. ágúst 2011

Sambandsþing ungra sjálfstæðismanna fer fram í Hveragerði 26. – 28. ágúst næstkomandi. Á þinginu verður umræða og afgreiðsla ályktana málaefnastarfs og ný stjórn og forysta sambandsins kjörin til næstu tveggja ára. Huginn á, eins og önnur aðildarfélög sambandsins, rétt á að senda fulltrúa á þingið og skipa varafulltrúa...

Lesa áfram

Aðalfundur Hugins

22. mars 2011

 Aðalfundur Hugins (f.u.s í Garðabæ) verður haldinn miðvikudaginn 30. mars 2011 á heimili félagsins að Garðatorgi 7, Garðabæ, og hefst klukkan 20.00. Dagskrá:1. Venjuleg aðalfundarstörf2. Lagabreytingar3. Önnur mál Stjórn Hugins í Garðabæ

Lesa áfram

Ný stjórn Hugins

18. febrúar 2011

Á aðalfundi Hugins, mánudaginn 27. september, var kjörin ný stjórn. Victor Ingi Olsen var kjörinn formaður en Sigurbjörn Ingimundarson sóttist ekki eftir endurkjöri. Auk Victors voru kjörin í stjórn þau Björn Már Ólafsson, Edda Sif Pálsdóttir, Hilmar Kristjánsson, Íris Káradóttir, Kristín Jónsdóttir, Margrét Bjarnadóttir, Viktor hrafn Hólmgeirsson og Þorsteinn Júlíus Árnason...

Lesa áfram

Pub-Quiz Hugins

15. október 2008

Miðvikudaginn 8. október síðastliðinn hélt Huginn vel heppnað Pub-Quiz í Sjálfstæðisheimilinu að Garðatorgi. Spyrill og spurningahöfundur kvöldins var Ari Guðjónsson stjórnarmeðlimur í Huginn og var þema spurninganna 'peningar'. Var mæting til fyrirmyndar og ljóst er að þessi kvöld eru komin til að vera í dagskrá Hugins...

Lesa áfram

Ferð í Alþingi

20. október 2007

Föstudaginn 12. október fór Huginn í ferð í alþingi og veittu þingmennirnir Bjarni Benediktsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir hópnum viðtöku. Byrjað var á því að skoða húsakynni Alþingis en að því loknu var haldið á skrifstofur þingmannanna þar sem boðið var upp á veitingar og sköpuðust fróðlegar og skemmtilegar umræður...

Lesa áfram

Milljarðar renna til manna sem stýrðu Framsókn

16. október 2007

Mbl.is: Gísli Marteinn Baldursson sagði á fundi borgarstjórnar sem nú stendur yfir að hann vonaðist til þess að REI- málið svokallaða fengi farsælan endi og að menn hættu að pukrast í því máli. „Ég vona að allir vilji ljúka þessu máli en stundum hvarflar að manni að menn vilji það ekki...

Lesa áfram

Lagabreytingar á aðalfundi

1. september 2007

Fyrir aðalfundi lágu eftirfarandi lagabreytingar en þær voru allar samþykktar. Lög félagsins á vefnum verða uppfærð á næstu dögum.Lagabreytingatillögur lagðar fyrir á aðalfundi Hugins 30. ágúst 2007Breyting á 5. gr. Lagt er til að fallið sé frá kröfu um skriflega umsókn til aðildar að félaginu...

Lesa áfram
Greinar

Bjarni Ben heimsækir Hugin

Hægri, 1. febrúar 2009

Þriðjudaginn 3. febrúar næstkomandi stendur Huginn fyrir opnum fundi með Bjarna Ben. Fundurinn verður haldinn í félagsheimili Sjálfstæðisflokksins, Garðatorgi 7 og hefst stundvíslega klukkan 20:00.Bjarni mun að lokinni framsögu sinni sitja fyrir svörum. Að loknum fundi verður gestum boðið upp á léttar veitingar og fjörugar umræður.Allir velkomnir!

Lesa áfram

Hægri - 35 ára afmælisrit

Hægri, 29. desember 2008

HægriHuginn hefur gefið út nýtt tölublað af Hægri í tilefni af 35 ára afmælis Hugins. Hægt er að nálgast ritið á pdf formi með því að fara inn á http://haegri.is/haegri/Haegri.pdf Ritinu verður einnig dreift í hús í Garðabæ

Lesa áfram

Huginn fagnar 35 ára afmæli sínu

Sigríður Dís Guðjónsdóttir, 29. nóvember 2008

Huginn, félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ, fagnar í dag 35 ára afmæli sínu. Á stofnfundi félagsins var fyrsti formaður þess kjörinn Smári Hermannsson. Á fundinum var lýst yfir almennri ánægju með nýtt félag og vonast var til þess að félagið yrði langra lífdaga auðið.Áherslumál félagsins hafa jafnan fylgt þjóðfélagslegri umræðu hverju sinni...

Lesa áfram

PubQuiz í kvöld

Sigríður Dís Guðjónsdóttir, 6. nóvember 2008

Í kvöld, fimmtudaginn 6. nóvember, heldur huginn annað PubQuiz vetrarins. Herlegheitin hefjast klukkan 21:00 í félagsheimili Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ, Garðatorgi 7. Spurningahöfundar eru engir aðrir en Hafliði Hjartarson og Ásgeir Einarsson en þeir eru algerir spurningagerðarmeistarar. Boðið verður upp á bjór fyrir þá sem hafa aldur til...

Lesa áfram

Hádegisverðurinn er aldrei ókeypis

Sigríður Dís Guðjónsdóttir, 7. september 2008

  Foreldrar grunnskólabarna í Garðabæ hafa látið í ljós óánægju með þann kostnað sem þau bera vegna skólamáltíða barnanna sinna. Óánægjuraddirnar stafa ekki síst af því að nágrannasveitarfélögin bjóða upp á ódýrari skólamáltíðir með niðurgreiðslum...

Lesa áfram

Ályktun um „frítt í strætó“

Hægri, 19. ágúst 2008

Huginn, félag ungra Sjálfstæðismanna í Garðabæ, fagnar þeirri ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar að draga sig út úr verkefninu „frítt í strætó“. Þeirri stefnu skal ávallt framfylgt að einstaklingar sem nýta sér ákveðna þjónustu skuli bera þungann af kostnaði hennar sjálfir til að koma í veg fyrir óþarfa skattpíningu á bæjarbúa...

Lesa áfram

Aðalfundur Hugins

Hægri, 13. ágúst 2008

Aðalfundur Hugins, félags ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ, var haldinn í félagsheimili Sjálfstæðisflokksins við Garðatorg, miðvikudaginn 30. júlí síðastliðinn. Fjöldi fólks mætti á fundinn til að taka þátt í hefðbundnum aðalfundarstörfum.   Sigríður Dís Guðjónsdóttir var kjörin formaður félagsins...

Lesa áfram
Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.